Lögfræði

Lögfræði

GH Sigurgeirsson Intellectual Property er sjálfstætt dótturfélag LEX lögmannsstofu sem veitir sérsniðna þjónustu á öllum sviðum hugverkaréttar. Lögmenn okkar eru meðal virtustu og reyndustu sérfræðinga Íslands á sviði hugverkaréttar. Þar að auki hafa þeir málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti Íslands og geta þannig komið fram fyrir hönd viðskiptavina okkar á öllum dómstigum íslenska dómskerfisins.

Lögfræði

Við aðstoðum viðskiptavini okkar við allan ágreining á sviði hugverkaréttar og bjóðum upp á stefnumiðaða ráðgjöf um bestu leiðina til aðgerða. Við höfum auk þess mikla reynslu af málum sem varða falsaðar vörur og aðgerðum til að fresta tollafgreiðslu vöru vegna brota á hugverkaréttindum.

L

Málflutningur og úrlausn ágreiningsmála

Við aðstoðum viðskiptavini okkar við allan ágreining á sviði hugverkaréttar og bjóðum upp á stefnumiðaða ráðgjöf um bestu leiðina til aðgerða. Vönduð meðferð ágreiningsmála krefst samsetningar af reynslu af málarekstri og sérfræðiþekkingu. Við bjóðum upp á þessa samsetningu. Markmið okkar er að leiðbeina viðskiptavinum okkar í gegnum málaferli á fagmannlegan og málefnalegan hátt og veita þeim alhliða ráðgjöf á öllum stigum málsins. Reyndir lögmenn okkar eru með málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti Íslands og geta þannig komið fram fyrir hönd viðskiptavina okkar á öllum dómstigum íslenska dómkerfisins.

Varnir gegn fölsun

Við höfum mikla reynslu í málum sem varða falsaðar vörur og vörur og/eða þjónustu sem brjóta gegn hugverkaréttindum af ýmsu tagi. Lögmenn okkar eru meðal reyndustu landsins þegar kemur að frestun á tollafgreiðslu vöru sem brýtur gegn hugverkaréttindum. Við höfum ennfremur víðtæka reynslu af því að leggja fram beiðnir um lögbann til að framfylgja slíkum réttindum.